Description
Frábær jólagjafahugmynd fyrir þína BFF
Kaupir 2 og færð 3 vöruna með 50% afsl og í vandaðri gjafaöskju
þrennan inniheldur sjampó,næringu og Leave in Treatment
Illuminate Colour sjampóið og næringin inniheldur sérvalin efni úr jurtum sem veita vernd, styrk, glans og næringu í hárið. Sjampóið og næringin hjálpar til við veita náttúrulegan gljáa í bæði náttúrulegt og litað hár sem hefur misst allan glans.
Leave in treatment er enn ein snilldin frá REF Stockholm enda fagfólk að störfum þar sem framleiðir vörur fyrir annað fagfólk.
Þetta frábæra efni nýtist til þess að vernda hárið frá bæði hitaskemmdum sem kunna að fást við notkun heitra tækja sem og fyrir útfjólubláum geislum sólar. Þú getur því bæði þurrkað og slétt (nú eða krullað!) hárið og hlaupið svo út í sólina áhyggjulaus. Það er að segja ef þú notar Leave in treatment fyrst og beitir heitu tækjunum þínum á réttan hátt.
Ekki nóg með það því efnið virkar einnig sem flækjuvörn og hjálpar til við að móta hárið eins og þú vilt hafa það. Þessi öfluga vara gefur extra mikla næringu og mýkt í hárið sem skilar sér í fallegum og náttúrulegum gljáa.
Leave in treatment er kröftug lausn búin til úr náttúrulegum efnum eins og kókosolíu, jojobaolíu og náttúrulega unnu glyseríni. Í efninu er einnig að finna serum sem er bæði nærandi fyrir lokkana þína sem og mótandi. Þá er efnið einnig 100% vegan og stútfullt af prótínum og græðandi jurtum.